Þetta skiptir okkur máli
Reykjavík á að vera borg friðar og mannréttinda. Allar ákvarðanir um framtíð Reykjavíkur á að taka á grunni lýðræðis út frá jöfnuði, sjálfbærni og félagslegu réttlæti, með velferð og öryggi íbúa í fyrirrúmi.
Húsnæði á að vera heimili og skal byggt fyrir fólk en ekki fjárfesta. Það á ekki að braska með heimili fólks!
Almenningssamgöngur eru kjaramál. Gott flæði samgangna er umhverfismál. Það á að vera greiðfært um borgina og auðvelt að komast á milli staða. Vinstrið vill að Reykvíkingar hafi raunverulegt val um hvernig þeir fara á milli staða.
Menntakerfið er eitt af mikilvægustu jöfnunarkerfum samfélagsins. Ryðjum úr vegi efnahagslegum hindrunum fyrir öll börn.
Hlúum vel að því sem er gott og fallegt í Reykjavík. Höfuðborgin á að búa yfir iðandi og skemmtilegu lífi, bæði innandyra og utan.
Drögum úr einmanaleika og félagslegri einangrun. Styrkjum félagsmiðstöðvar og frístundastarf barna og unglinga. Tryggjum öldruðum viðeigandi þjónustu og öflugt félagsstarf.
Náttúran er okkur öllum lífsnauðsynleg. Verndum dýrmæt náttúrusvæði innan borgarinnar og friðlýsum fleiri svæði.
Reykjavíkurborg er stór vinnustaður. Borgin á að bera hag starfsfólks síns fyrir brjósti og tryggja öllu starfsfólki sínu mannsæmandi kjör, starfsaðstæður og aðbúnað.